Rauntímaendurgjöf á mikilvæga þætti endurlífgunar, þar sem Brayden Baby dúkkan tengist Brayden Online, gefur raunverulega og eftirminnilega námsupplifun.
Fara má yfir og greina frammistöðu til að bæta gæði endurlífgunar, bæði hjá einstaklingum og innan stofnunarinnar.
Nota má Brayden Baby Pro með Brayden Online í iOS (iPad) og Chrome.
Er ég að gera þetta rétt?
Brayden Baby Pro æfingadúkkan gefur rauntímaendurgjöf sem auðvelt er að túlka og nota og bætir gæði endurlífgunar… strax!
Dýpt hjartahnoðs * hraði / yfir tíma
Hjálpar nemandanum að hnoða á réttri dýpt og hraða og með réttri afslöppun brjóstkassans á milli hnoða.
Dýpt hjartahnoðs * hraði / í heild
Sýnir öll hnoð í hverri lotu til að stuðla að jöfnu og réttu hjartahnoði.
Staða handa
Gefur rauntímaendurgjöf um stöðu handa og sýnir merki (rautt ljós) þegar staða handa er röng.
Rúmmál innblásturs
Gefur rauntímaendurgjöf um innblástur, þ.e. hvort rétt loftmagn sé gefið.
Hvað þarf ég að bæta?
Margvísleg tækifæri til yfirferðar stuðla að því að bæta og viðhalda gæðum endurlífgunar.
Yfirferð á endurlífgun
- Gefur einkunn og myndræna samantekt fyrir hvern mældan þátt endurlífgunar miðað við fullkomna frammistöðu, til að draga fram hvað þarf að bæta.
- Dregur fram frammistöðu í hverjum mældum þætti endurlífgunar.
Ítarleg greining á endurlífgun
- Sýnir ítarlega tölulega greiningu á öllum helstu mæliþáttum endurlífgunar og gefur nákvæma samantekt á frammistöðu.
- Einnig má sýna sérstök gögn um innblástur við þjálfun í endurlífgun barna og ungbarna.
Samantekt frammistöðu
- Gefur viðeigandi upplýsingar um hvern mældan þátt endurlífgunar til að bæta frammistöðu.
Niðurstöður eftir lotum
- Greinir frammistöðu í hverjum mældum þætti fyrir hverja lotu endurlífgunar.








