SAGAN

Donna er leiðandi fyrirtæki í sölu á búnaði til aðhlynningar og flutnings á slösuðum. Viðskiptavinir okkar eru meðal annars sjúkrabifreiðar, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, lögregla, almannavarnir, björgunarsveitir, apótek og fleiri aðilar. Donna ehf er umboðsaðili fjölda lykilframleiðanda sjúkrabúnaðar í heiminum í dag. Einnig bjóðum við fjölda vandaðra heilbrigðisvara og lækningatækja sem bæta daglegt líf og heilsu. Við höfum leitast við að bjóða aðeins viðurkenndar gæða vörur þar sem viðskiptavinir okkar verða að geta treyst þeim á ögurstund við erfiðustu aðstæður. Donna ehf var stofnuð 1974 af Ólafi Magnússyni.

Donna hefur verið brautryðjandi í sölu hjartastuðstækja á Íslandi og var meðal annars fyrsti aðilinn sem bauð upp á hjartastuðtæki með töluðum íslenskum leiðbeiningum fyrir notendur. Í dag byggir fyrirtækið á áratuga reynslu, þekkingu og traustum birgjasamböndum.