Titan-Ti tvískiptu, mjókkandi björgunarbörurnar eru með TIG-soðinni grind úr títani, einkaleyfisvarða LocSafe tengikerfinu og StratLoad™ festipunktum. Styrkur þeirra byggir á lögun grindarinnar, smíðaaðferðum og efnum.
Einstök tvískipting gefur fullkomlega trausta tengingu á milli hluta björgunarbaranna, án pinna eða röra sem renna hvert inn í annað. LocSafe gerir kleift að ganga sjónrænt úr skugga um á fljótlegan hátt að tengingar séu öruggar meðan á aðgerð stendur. Lítill hnappur kemur í veg fyrir að tengingin losni meðan á björgun stendur. Með þessu tengikerfi má setja börurnar saman eða taka þær í sundur á um 15 sekúndum.
Titan-Ti tvískiptu, mjókkandi björgunarbörurnar eru hannaðar til að uppfylla Traverse-staðal um 1.134 kg þegar þær hanga í fjögurra punkta böruhengi. Allar prófanir voru gerðar hjá óháðum aðila og sýna að börurnar fara fram úr þessari kröfu.
Titan-Ti tvískiptu, mjókkandi björgunarbörurnar eru sérhannaðar fyrir tæknilega björgun. Efnin gera þeim kleift að þola nánast allar aðstæður og hönnunin sjálf gefur notendavænan vinnuflöt. Títanið hefur þann viðbótarkost að helminga þyngdina miðað við sambærilegar gerðir úr ryðfríu stáli.
Meðal sérstakra eiginleika er 25,4 mm efra rör sem er auðveldara að halda í en grennri rör. Fjórir StratLoad™ festipunktar gera fljótlegt, auðvelt og öruggara að festa böruhengið. Festipunktarnir verja karabínurnar gegn veggjum, klettum o.s.frv. Netið úr þéttu pólýetýleni hleypir vatni og lofti auðveldlega í gegnum sjúklingsrýmið, en smá götin gera það að verkum að rusl festist síður. Pólýetýlenið ryðgar ekki og getur því ekki valdið sjúklingnum frekari skaða, og það er fest með teygjusnúru svo það gefur eftir ef álagi er rangt beitt á það.
Hlífar fyrir tengihólka fylgja öllum tvískiptum björgunarbörum. Hlífarnar eru settar á hvorn enda þegar börurnar eru ekki í notkun. Þær verja skrúfganginn gegn dældum og halda rusli úti.

Sjúkrakassi (tómur) - Flexibeauty
Pocket BVM blástursbelgur
Vivest P3 hjartastuðtæki með íslenskum raddleiðbeiningum
Sager togspelka
PAX Ampúlluveski XS
Nonin Flex sensor - fullorðins
Corpuls auryx sett 2stk (M/L) Orange
Braun Pulsoximeter 1 súrefnismettunarmælir
Súrefnismettunarmælir - Onyx® Vantage 9590
Statpacks G3 Remedy Kit - lyfjaeining
Nonin 7500 taska
Nemi fyrir súrefnismettun - einnota fullorðins
Pax Pro hanska- og áhaldahulstur
Pax Pro áhaldahulstur
Statpacks G3 Quickroll Intubation Kit 











