Rafknúin sogdæla með stiglausri stillingu á sogkrafti
ACCUVAC Lite hefur í notkun sömu kosti og ACCUVAC Pro. Sterkbyggt húsið og snjöll staðsetning forðabúrs og sogslöngu eru eins, sem og þægilegt burðarhandfangið og hentugir aukahlutir eins og hlífðartaskan og aukahlutataskan.
ACCUVAC Lite sogdælan nýtist sjúkraflutningum ekki aðeins til að hreinsa öndunarveg; einnig má nota hana til að tæma loft úr lofttæmisspelkum og grjónadýnum. Þannig er ACCUVAC Lite fullkominn búnaður fyrir sjúkraflutninga í hvaða útkalli sem er.
Á ACCUVAC Lite er sogkrafturinn stilltur stiglaust með stórum stillihnappi. Þannig má stilla hann mjög nákvæmlega. Sogkraftinn má lesa af þrýstimæli.

Hálskragi mjúkur Standard
Sager togspelka
SAM Medical fingurspelka
Water-Jel 10x40
Kendrick togspelka
PEEP valve einnota
Súrefnismaski með sarpi - fullorðna
Kokrenna 5 - 110 mm
BIEL Tool frá Paratech®- atgeir m/hulstri
Pennaljós Adlite Pro LED 















