Klemmuplástur 6×38 – 6 stk. í bréfi
37 kr.
6 sterílir plástar í bréfi. Henta vel til að klemma saman smáskurði á húð.
365 Strips eru dauðhreinsaðir, ofnæmisprófaðir og styrktir sárastrimlar til að loka sárum. Þeir henta fyrir grunna skurði og rifur þar sem draga má sárbrúnirnar saman. Sárastrimlar skila betri útlitslegum árangri og minni örum.
Auðvelt er að setja 365 Strips á og fjarlægja þá og þeir festast vel á svæðum sem erfitt er að búa um og yfir beinaberum svæðum.
Ásetning…
1. Hreinsaðu sárið og gakktu úr skugga um að húðin í kring sé hrein, þurr og laus við sápu, krem og olíu.
2. Opnaðu dauðhreinsaða pokann og taktu strimilinn af spjaldinu með dauðhreinsaðri töng eða hanskaklæddri hendi.
3. Settu fyrsta strimilinn í miðju sársins, hornrétt á sárið, til að draga sárbrúnirnar saman. Festu strimilinn yfir sárið og þrýstu létt á til að hann festist.
4. Settu strimlana með um 3 mm bili eftir allri lengd sársins.
5. Til að auka festu má setja tvo aukastrimla samsíða sárinu til að festa aðalstrimlana.
Fjarlæging…
1. Ef aukastrimlar voru notaðir skal fjarlægja þá fyrst. Lyftu varlega enda strimlanna. Dragðu strimlana hægt og varlega til baka til að lágmarka skaða á yfirhúð. Styddu við húðina með fingrunum meðan strimlarnir eru fjarlægðir af svæðinu beint yfir sárinu.
2. Hreinsaðu sárið og húðina í kring.
Varúðarráðstafanir:
• Teygðu ekki á 365 Strips eða settu þá á sárið með þrýstingi, þar sem blöðrur geta myndast þegar sárið bólgnar.
• Ef ástand sársins versnar skal leita til heilbrigðisstarfsmanns.
• Notist ekki ef umbúðir eru skemmdar.
• Dauðhreinsað.
• Einnota.
• Latexfrítt.
• Geymist á köldum og þurrum stað, varið gegn beinu sólarljósi.
Á lager

Infant sensor
Vinnuljós - LAP Low Profile - gult
Nonin Flex sensor - fullorðins
MiniMedicut® Hjúkrunarskæri, 14 cm, tactical svört
Adsafe™ Plus - CPR Face Shields í hylki orange
Nonin Value sensor barna
PAX Ampúlluveski XS
BIEL Tool frá Paratech®- atgeir m/hulstri
Kangaroo Bag XL
Wiz-Loc Hálskragi
LAP LED Inniljós, 600 mm, 24V með hreyfiskynjara
Súrefnismettunarmælir - Onyx® Vantage 9590
SAM spelka - rúlla
Statpacks G3 Medslinger axlarpoki
Númeraplötu festing með hliðaljósum
G3 Bolus sjúkrabakpoki - StatPack
Flexibox sjúkrakassi - án innihalds 







