Brunastöð
Hentug brunastöð fyrir skyndibitastaði, kaffihús og minni fyrirtæki. Hana er hægt að festa á vegg og gerir hana aðgengilega.
Um Water-Jel First Responder brunagel og brunaumbúðir
- Stöðvar bruna
- Kælir brunann og linar sársauka
- Ver gegn óhreinindum
- Dregur úr því að umbúðir festist við sárið
Water-Jel First Responder brunagel er nýtt, lyktarlaust og kristaltært gel. Það verður ekki ógegnsætt fyrir starfsfólk á bráðamóttöku eða brunadeild, sem auðveldar mat á brunasárinu og vefnum í kring.
Water-Jel dregur hitann úr bruna, linar sársauka, kælir húðina og ver gegn óhreinindum úr lofti. Með því að bera Water-Jel á sem fyrst dreifist hitinn úr brunanum og hann kemst síður dýpra í húðina.
Water-Jel er notað af fyrstu viðbragðsaðilum, svo sem sjúkraflutningamönnum, slökkviliðum og lögreglu, og víða í iðnaði og framleiðslu, matvælaþjónustu, við suðuvinnu og í hernum.
Water-Jel Technologies vann með sérfræðingum um allan heim að því að uppfylla strangar kröfur um meðferð brunasára utan sjúkrahúsa.

Babinski Buck Reflex Hamar með innbyggðum bursta - svartur haus
SKEDCO® SK-200C-OR Sked® Basic Rescue System – International Orange with Cobra Buckles®
Augnskol 2x1 líter í rykvörðum veggfestanlegum skáp
Nanuk 955 Taska með mótanlegu svampinnleggi - Svört
CITY´S bakpoki heimahjúkrun
Nanuk Molle Plötusett í lok á 935 tösku
CALIBRA® - Pocket Aneroid handvirkur blóðþrýstingsmælir
Sogleggur - Suction Catheters 18FR - án vacuum
Macintosh barkablað - HPC MAC4
Nanuk Stórt hjólasett fyrir 935 tösku
Barkaslanga - Parker 7.5 ET Tube cuffed
NANUK 935 netvasar í lok
Statpacks G2 Infusion drug case
Nanuk 990 Taska - Svört
Flexibox sjúkrakassi - án innihalds
Iris skæri 


